Fara beint í aðalefni

ÞJÓNUSTA OG VERÐSKRÁ

Þrif þjónusta

Steinabón býður upp á glæsilega útbúna bónstöð fyrir bílinn þinn. Komdu og upplifðu það besta!
[Öll verð eru með vsk]

Verðskrá Fólksbíll Lítill Jeppi Stór Jeppi Yfirstærð
Alþrif + bón Nánar 28.500 kr 30.500 kr 32.500 kr 36.500 kr

Alþrif sameina vönduð þrif að utan og innan með CARPRO-vörum.

  • Tjöruþvottur.
  • Handþvottur með mjúkum þvottahanska og mildri sápu.
  • Felgur vandlega hreinsaðar með IronX sem losar bremsusót og járnagnir.
  • Hurðaföls þrifin.
  • Bíllinn þurrkaður með sérhæfðu þurrkhandklæði og blæstri.
  • Bónvörn (CARPRO HydrO2) sett á lakk, felgur og rúður.
  • Dekkjagel borið á dekkin og gefur þeim náttúrulega, satíndökka áferð.
  • Rúður hreinsaðar fyrir skýrt útsýni.
  • Ryk og óhreinindi blásin úr þröngum svæðum með loftpressublæstri.
  • Innrétting og mælaborð þrifin með CARPRO-efnum, klútum og burstum.
  • Bíllinn ryksugaður vandlega.
  • Dekkingarefni borið á mottur. Efnið gefur þeim náttúrulega, satíndökka áferð án þess að mynda sleipt yfirborð.

Sterkari bónvörn er viðbót: Við mælum með AutoFinesse Lavish fyrir meiri vörn (~ 6mánaða ending) frá aðeins 3.000 kr aukalega.

Djúphreinsun er viðbót: Ef blettir eru í sætum eða teppum, eða langt er liðið frá síðustu djúphreinsun, má bæta henni við þjónustuna.

Bóka tíma

Þrif að utan + bón Nánar 15.000 kr 16.000 kr 16.500 kr 19.000 kr

Þrif að utan með CARPRO-vörum skila hreinu, glansandi og vel vörðu yfirborði.

  • Tjöruþvottur.
  • Handþvottur með mjúkum þvottahanska og mildri sápu.
  • Felgur vandlega hreinsaðar með IronX sem losar bremsusót og járnagnir.
  • Hurðaföls þrifin.
  • Bíllinn þurrkaður með sérhæfðu þurrkhandklæði og blæstri.
  • Bónvörn (CARPRO HydrO2) sett á lakk, felgur og rúður.
  • Dekkjagel borið á dekkin og gefur þeim náttúrulega, satíndökka áferð.

Sterkari bónvörn er viðbót: Við mælum með AutoFinesse Lavish fyrir meiri vörn (~ 6mánaða ending) frá aðeins 3.000 kr aukalega.

Bóka tíma

Þrif að innan Nánar 15.000 kr 16.000 kr 16.500 kr 19.000 kr

Innréttingin er hreinsuð vandlega með CARPRO-vörum sem skilar náttúrulega fallegri innréttingu.

  • Rúður hreinsaðar - skýrt útsýni.
  • Ryk og óhreinindi blásin úr þröngum svæðum með loftpressublæstri
  • Innrétting og mælaborð þrifin með CARPRO-efnum, klútum og burstum.
  • Bíllinn ryksugaður vandlega.
  • Mottur fá CARPRO PERL dekkingarefni. Efnið gefur þeim náttúrulega, satíndökka áferð án þess að mynda sleipt yfirborð (því PERL er vatnsleysanlegt efni)

Djúphreinsun er viðbót: Ef blettir eru í sætum eða teppum, eða langt er liðið frá síðustu djúphreinsun, má bæta henni við þjónustuna.

Bóka tíma

AutoFinesse Lavish bón (~6mán) Nánar + 3.000 kr + 3.500 kr + 3.500 kr + 4.000 kr

Vörn og ending: Allt að ~6mán endingartími.

✓AutoFinesse Lavish er viðbótarvörn fyrir lakkið sem eykur vörn og gljáa eftir þrif.

- -

ATH: Þegar talað er um 6mánaða endingu þá miðast það við kjöraðstæður, gott lakkástand og rétta umhirðu. Íslenskar aðstæður eru ekki kjöraðstæður en reynslan er gífurlega góð (3-5mánuðir), fer eftir sumri eða vetri.

Skoða AutoFinesse Lavish í vefverslun

Bóka tíma

Vélaþvottur Nánar 8.500 kr 8.500 kr 8.500 kr 8.500 kr

Þrif á vélarrými, undir húddi og í húddfölsum.

  • Allur vélasalurinn er tjöruþveginn og spúlaður.
  • Vélasalurinn er þurrblásinn með lofti.
  • Gljáefni er borið á helstu plastfleti sem gerir herslumuninn í frágangi.

Bóka tíma

Djúphreinsun sæta Nánar 16.500 kr 16.500 kr 16.500 kr 16.500 kr

Hvernig fer djúphreinsun fram?

  • Sætin eru sápuþvegin og óhreinindi leyst upp með burstum, burstaskífum eða öðrum viðeigandi verkfærum.
  • Óhreinindi eru sogin úr áklæðinu með djúphreinsivél.

Verð eftir sætafjölda

  • 5 sæta bifreið: 3.300 kr. × 5 = 16.500 kr.
  • 7 sæta bifreið: 3.300 kr. × 7 = 23.100 kr.

Eftir meðhöndlun: Áklæðið getur verið rakt eða blautt. Tryggja þarf að það þorni vel, svo spurðu um leiðbeiningar. Við mælum með að láta bílinn standa í lausagangi með heitan blástur þar til áklæðið er þurrt; það er skilvirkasta leiðin. Passaðu bara að miðstöðin sé ekki stillt á hringrás.

Bóka tíma

Djúphreinsun teppa Nánar 16.500 kr 17.500 kr 18.500 kr frá 22.000 kr

Hvernig fer teppahreinsun fram?

  • Teppin eru sápuþvegin og óhreinindi losuð með burstum, burstaskífum eða öðrum viðeigandi verkfærum.
  • Óhreinindin eru sogin úr teppunum með djúphreinsivél.

Taumottur: Hreinsun á taumottum kostar 2.000 kr. aukalega fyrir hverja mottu.

Eftir meðhöndlun: Teppin geta verið rök eða blaut. Tryggja þarf að þau þorni vel, svo spurðu um leiðbeiningar. Við mælum með að láta bílinn standa í lausagangi með heitan blástur þar til teppin eru þurr; það er skilvirkasta leiðin. Passaðu bara að miðstöðin sé ekki stillt á hringrás.

Bóka tíma

Leðurhreinsun sæta Nánar 16.500 kr 16.500 kr 16.500 kr 16.500 kr

Hvað felst í leðurhreinsun?

  • Leðrið er hreinsað með sérstökum leðurhreinsi og leðurhreinsibúnaði frá CARPRO.
  • Óhreinindi eru losuð úr yfirborði leðursins.

Verð eftir sætafjölda

  • 5 sæta bifreið: 3.300 kr. × 5 = 16.500 kr.
  • 7 sæta bifreið: 3.300 kr. × 7 = 23.100 kr.

Leðurnæring: Leðurnæringu skal alltaf bera á leður eftir leðurhreinsun til að varðveita mýkt og sporna gegn leðurþurrki og öðru sliti.

Bóka tíma

Leðurnæring sæta Nánar 8.500 kr 8.500 kr 8.500 kr 8.500 kr

Verð eftir sætafjölda

  • 5 sæta bifreið: 1.700 kr. × 5 = 8.500 kr.
  • 7 sæta bifreið: 1.700 kr. × 7 = 11.900 kr.

Leðurhreinsun og leðurnæring eru skráðar sem aðskildar þjónustur í verðskránni. Ef þörf er á að fjarlægja óhreinindi úr sætunum skaltu einnig skoða leðurhreinsun.

Bóka tíma

DJÚPHREINSITILBOÐ Nánar 49.000 kr 52.000 kr 55.000 kr 62.500 kr

Tilboðsþrenna!

Tilboðið sameinar þrjár þjónustur í einum pakka:

(Oft kallað söluþrifspakkinn.)

  • Alþrif.
  • Djúphreinsun eða leðurhreinsun sæta.
  • Djúphreinsun teppa.
Vinsælasti pakkinn okkar!

Pakkinn hentar til dæmis þegar þú hefur keypt notaðan bíl eða vilt undirbúa bílinn fyrir sölu.

Þú sparar 12.500kr með þessu tilboði!

  • Ef um taumottur er að ræða er það aukalega 2.000kr á hverja taumottu.
  • Ekki er tau- eða leðurefni í hurðaspjöldum á öllum bílum, svo ekki innifalið. Ef óskað er eftir slíkri viðbót, þá 1.500kr viðbót hver hurð.
  • Verð miðast við 5 sæta bifreiðar. Ef um 7 sæta bifreið (eða meira) er að ræða, þá er hvert sæti á 2.900kr aukalega.
  • Gildir ekki fyrir MJÖG skítugar bifreiðar sem ekki hafa verið þrifnar mánuðum saman, þá þarf að greiða venjulegt- og/eða aukagjald.

Bóka tíma

Detailing

Veistu muninn á alvöru detailmeðferð og hefðbundinni bónmeðferð? Við sérhæfum okkur í detailmeðferðum!
[Öll verð eru með vsk]

Verðskrá Fólksbíll Lítill Jeppi Stór Jeppi Yfirstærð
L1 Mössun Nánar 70.000 kr 75.000 kr 80.000 kr frá 95.000 kr

Af hverju að skoða lakkið á nýjum bíl?

Á nýjum bílum er oftar en ekki að finna fínar þvottarispur, nuddför, slípunarför eða límleifar eftir framleiðslu og flutninga.

Í L1 er gert ráð fyrir að ein umferð með mössunarvél dugi til að undirbúa lakkið fyrir ceramic-húðun á nýjum bíl.

Gljástig og mælingar

Viðmiðið er allt að 95–100 GU í gljástigi, eftir ástandi lakksins. Við mælum lakkið á eftir með glansmæli (Gloss Unit). Til samanburðar mælast nýir bílar frá umboði oft 80–95 GU. Við notum einnig lakkþykktarmæli og sérstök lakkljós við vinnuna.

Verð og skilyrði fyrir L1

  • Verðið miðast við alveg nýjan og ósnertan bíl sem hefur aldrei verið þveginn áður. Annars gæti bíllinn þurft L2-flokk samkvæmt þjónustuskiptingunni.
  • Svart og mjög dökkt lakk krefst sértilboðs; umfang og verð eru umsamin hverju sinni.
  • Undanfari: Verðið er viðbót við pakkann „Þrif að utan + bón“.

Bóka tíma

L2 Mössun Nánar 95.000 kr 110.000 kr 120.000 kr frá 140.000 kr

Hvaða árangri er stefnt að?

Á eldri bílum er miðað við um 60% leiðréttingu, eftir ástandi lakksins. Á nýlegra og vel með förnu lakki getur árangurinn orðið 80–95%. Þetta eru viðmið; ástand lakksins ræður því hversu mikill árangur næst hverju sinni.

Við notum lakkþykktarmæli, gljástigsmæli og sérstök lakkljós við lakkviðgerðir. Gljástigsmæling sem hluti pakkans er aðeins innifalin í L3 og L4. Nýir bílar frá umboði mælast oft 80–95 GU.

Verð og fyrirvarar

  • Undanfari: Verðið er viðbót við pakkann „Þrif að utan + bón“.
  • Svart og mjög dökkt lakk krefst sértilboðs; umfang vinnunnar og verð eru þá umsamin hverju sinni.

Bóka tíma

L3 Mössun Nánar 130.000 kr 150.000 kr 160.000 kr frá 170.000 kr

Hvaða árangri er stefnt að í L3?

Markmiðið er um 90–95% leiðrétting. Unnið er ítarlega í lakkinu með áherslu á að gamlar þvottarispur og gallar verði sem minnst áberandi. Þetta er árangursviðmið; ástand lakksins ræður hversu langt er hægt að ganga.

Gljástigsmæling

Viðmiðið er allt að 95+ í GU (gljástig), eftir ástandi lakksins. Til samanburðar mælast nýir bílar beint frá umboði oft 80–95 GU.

Við notum einnig lakkþykktarmæli og sérstök lakkljós við lakkleiðréttinguna.

Verð og fyrirvarar

  • Svart og mjög dökkt lakk krefst sértilboðs; umfang vinnunnar og verð eru umsamin hverju sinni.
  • Undanfari: Verðið er viðbót við pakkann „Þrif að utan + bón“.

Bóka tíma

L4 Mössun Nánar frá 160.000 kr frá 180.000 kr frá 190.000 kr frá 210.000 kr

Hvað felst í L4-meðferð?

Hér förum við alla leið! Við eltumst við allar rispur eins og lakkið leyfir og setjum bílinn í algjöran sýningarham!

Við beitum grófmössun, millistigsmössun, fínmössun og blautslípun með STIX eftir því sem verkefnið krefst. Stórar og litlar vélar og viðeigandi verkfæri eru notuð til að vinna í ólíkum flötum bílsins.

Markmiðið er að ná þeirri sýningaráferð sem lakkið leyfir. Lakkþykktarmælir, lakkgljástigsmælir og sérstök lakkljós styðja við mat og vinnu.

Gljástigsmæling

Viðmiðið er allt að 95+ í GU (gljástig), eftir ástandi lakksins. Til samanburðar mælast nýir bílar beint frá umboði oft 80–95 GU.

Hvernig er L4 verðlagt?

  • Í L4 er einblínt á árangur og vinnan getur verið mismikil eftir bílnum. Verkefnið er því verðmetið í lok verks.
  • Upphæðir í verðskránni eru frá-verð.
  • Undanfari: Verðið er viðbót við pakkann „Þrif að utan + bón“.

Bóka tíma

DQ.PRO
Diamond Quartz
Lakkcoat Nánar
25.000 kr 25.000 kr 30.000 kr 35.000 kr

DQ.PRO – Diamond Quartz keramikvörn

DQ.PRO er fyrir þá sem vilja alvöru hörku og slitþol fyrir lakkið. Byltingarkennd nano-diamond keramik-húðunin er hönnuð sem öflug undirstaða undir valda C.QUARTZ-yfirvörn.

DQ.PRO er sett sem fyrsta varnarlag (harka/hardness) áður en CQPRO eða CQFR kemur yfir sem yfirlag (sleipa/slickness). Þetta er okkar ultimate-combo þegar keypt er bæði í einu. DQ.PRO er því ekki sett eitt og sér á lakk (e. standalone).

  • Getur aukið yfirborðshörku um allt að 5 stig og eykur mótstöðu gegn fínum rispum og sliti.
  • Hörð vörn gegn efnum og umhverfisálagi.
  • Öflugur grunnur undir valda C.QUARTZ-yfirvörn.

Ásetning og hersla

  • D.QUARTZ PRO borið jafnt á lakkið.
  • Vörnin er látin herða við stýrðar aðstæður yfir nóttu.
  • Yfirborðið yfirfarið vandlega áður en bíllinn fer út (daginn eftir).
  • Undanfari: Lakkleiðrétting L1, L2, L3 eða L4
    • Fer eftir ástandi lakksins hvaða mössun/leiðrétting er valin.
CQ.PRO
Professional
Lakkcoat Nánar
40.000 kr 50.000 kr 50.000 kr 60.000 kr

CQPRO – C.QUARTZ Professional lakkvörn

CQPRO er fyrir þá sem gera meiri kröfur til útlits og langtímaverndar.

  • Endingargóð húðunin veitir vernd í 2–4 ár.
  • Vatns- og olíufráhrindandi yfirborð þolir salt, efnaálag og krefjandi íslenskar aðstæður.
  • Útkoman er dýpri gljái, ríkari wet-look litadýpt og yfirborð sem helst hreint og fallegt lengur.

Ásetning og hersla

  • C.QUARTZ Professional borið jafnt á lakkið.
  • Vörnin er látin herða við stýrðar aðstæður yfir nóttu.
  • Yfirborðið yfirfarið vandlega áður en bíllinn fer út (daginn eftir).
  • Undanfari: Lakkleiðrétting L1, L2, L3 eða L4
    • Fer eftir ástandi lakksins hvaða mössun/leiðrétting er valin.
CQ.FR
Finest Reserve
Lakkcoat Nánar
60.000 kr 70.000 kr 70.000 kr 80.000 kr

CQFR – C.QUARTZ Finest Reserve lakkvörn

CQFR er fyrir þá sem sætta sig ekki við neitt minna en keramik-húð sem er umtöluð ein sú allra besta á heimsmarkaði í dag.

  • Framúrskarandi tækni skilar langtímavernd sem getur enst í 3–5 ár.
  • Háþróuð húðunin myndar sturlað vatns- og olíufráhrindandi yfirborð sem magnar upp endurkast, gljáa og wet-look litadýpt lakksins.
  • Aukin mótstaða gegn salti, efnaálagi, vatnsblettum og umhverfisóhreinindum gerir CQFR að hámarksvernd fyrir íslenskar aðstæður.

Ásetning og hersla

  • C.QUARTZ Finest Reserve borið jafnt á lakkið.
  • Vörnin er látin herða við stýrðar aðstæður yfir nóttu.
  • Yfirborðið yfirfarið vandlega áður en bíllinn fer út (daginn eftir).
  • Undanfari: Lakkleiðrétting L1, L2, L3 eða L4
    • Fer eftir ástandi lakksins hvaða mössun/leiðrétting er valin.
DLUX Felgucoat Nánar 30.000 kr 30.000 kr 30.000 kr 30.000 kr

DLUX felguvörn frá CARPRO

C.QUARTZ DLUX er gríðarlega sterkt felgucoat sem þolir allt að 800 °C hitastig og er því hentugt á felgur og bremsudælur.

DLUX auðveldar þrif gífurlega á felgunum og ver yfirborðið gegn bremsusóti og föstum óhreinindum.

Undirbúningur felgna

  • Felgurnar alveg dauðhreinsaðar upp (þannig að ekkert situr eftir)
    • Bremsusót, járneindir og gamalt wax fjarlægt.
  • Yfirborðið fituhreinsað með CARPRO Eraser.
  • DLUX ceramic vörn borin jafnt á felgurnar.
  • Vörnin er látin herða sig yfir nóttu við stýrðar aðstæður.
Gott að vita

Eldri eða illa farnar felgur: Slíkt þarf póleringu áður en vörnin er borin á, sem er annar kostnaðarliður.

GForce Rúðucoat Nánar 30.000 kr 35.000 kr 35.000 kr 40.000 kr

GForce rúðuvörn frá CARPRO

GForce er háþróuð nano-diamond keramikvörn fyrir bílrúður sem sameinar kristaltært útsýni, sturlaða vatnsfráhrindingu og topp akstursupplifun.

Keyrðu með öruggara útsýni – vatn, vegúði og óhreinindi eiga erfitt með að festa sig við glerið, sem skilar hreinni rúðum og öruggara útsýni.

Undirbúningur rúða

  • Allt gler hreinsað upp.
  • Léttpólering á glerinu er innifalin.
  • Alkóhólhreinsun á gleri með CARPRO Eraser.
  • GForce húðunin borin jafnt á glerið.
  • Vörnin látin herðast yfir nóttu við stýrðar aðstæður.
Gott að vita

Verð miðast við nýtt/nýlegt gler: Eldri rúður með oxun eða dropaförum gætu þurft dýpri mössun, sem er annar kostnaðarliður.

PPF – grjótvarnarfilma

Leiðbeinandi verðbil byggð á raunverulegum tilboðum úr Offers og handvirkri yfirferð. Endanlegt verð fer eftir bílgerð, stærð, lögun og frágangi.

[Öll verð eru með VSK] [PPF-verð eru áætluð út frá fyrri sambærilegum verkefnum]

PPF þjónusta Áætlað verð Stutt lýsing
Partial Front - Pakki Um 270.000 krFramendi bílsins lendir í mesta grjótkastinu - Verðu það strax í dag!
Partial Front - Pakki – umfang PPF-filmu
Full Front - Pakki Um 360.000 krFramendi bílsins lendir í mesta grjótkastinu - Verðu það strax í dag!
Full Front - Pakki – umfang PPF-filmu
Full body - Pakki Frá 850.000 krViltu vera all-in? Þá er þetta fyrir þig!
Full Body - Pakki – umfang PPF-filmu
Húdd 78.000–128.000 krAllt húddið er filmað og filman beygð snyrtilega undir brúnir.
⭐ Húdd - [Vinsælt]

Verndaðu húddið!

Eitt vinsælasta svæðið að filma!

Til að tryggja saumlaust og ósýnilegt útlit vefjum við filmuna alltaf undir húddbrúnina (e. tucking) til að ná sem bestum frágangi.

Mazda CX30 24' - 97,5þ

Tesla M3 24' - 110þ

Sorento 24' - 129þ

Sportage 18' - 84,5þ

Rav4 24' - 86þ

MachE GT 24' - 114,5þ

MachE 24' - 117þ

Pajero 07' - 113þ

Land Cruiser 150 22' - 145þ

Land Cruiser 250 25' - 144þ

BMW X3 22' - 109þ

Peugeot 3008e 24' - 108þ

Silverado 25' - 276þ (flókið húdd sem er allskonar í laginu, þurfti að tvískipta)

Transit 25' - 78þ

XC90 25' - 112þ

Tesla MY Juniper 25' - 74,5þ

BMW X5, 25' - 118þ

Tesla MY Juniper 25' - 69þ

Framstuðari 68.000–170.000 krMiðast við lakkmálaða hluta framstuðarans. Piano-svörtu fletirnir geta einnig verið filmaðir ef óskað er.
Framstuðari

Verndaðu framstuðarann áður en grjótið skilur eftir sig dýrt tjón!

Framstuðarinn er sá partur sem tekur á sig mesta grjótbarninginn og mesta nuddið ef bíllinn rekst utan í. Þessvegna er ágóði PPF-varnarfilmu á stuðara mikill, því hún gætu komið í veg fyrir dýra viðgerð og endurmálun lakksins!

Mazda 30 24' - 191þ

Jeep Renigate 22' - 64þ (einfaldur stuðari)

MachE GT 24' - 223,5þ

Land Cruiser 250 25' - 70þ

BMW X3 22' - 159þ

Tesla Model Y 22' - 99,5þ

Silverado 25' - 231,5þ (mjög flókinn stuðari)

Grand Cherokee 22' - 88þ (einfaldur stuðari)

Frambretti – allt brettið 69.000–140.000 krFilmað undir brún fyrir saumalausan frágang.
⭐ Frambretti - [Vinsælt]

Hagkvæmari útgáfa og vörn sett þar sem grjótbarningurinn er mestur!

Tvær leiðir:

1) Í 90% tilfella filmum við ALLT frambrettið til að ná fram saumalausum frágangi. Við vefjum filmunni á bakvið.

Pajero 35" breyttur 07' - 85,5þ

Tesla M3 24' - 166þ (stefnuljós og bretti tekin af)

Tesla MY 23' - 146þ (stefnuljós og bretti tekin af)

Sportage 18' - 69,5þ

Frambretti – fremsti partur 29.000–55.000 krUm þrisvar sinnum ódýrara en að filma allt frambrettið. Ein sýnileg lína verður þar sem filman endar.
⭐ Frambretti - [Vinsælt]

Frambrettin taka á sig grjótbarning fremst og líka neðst ef enginn drullusokkur er til staðar.

2) Filmað er bara yfir fremsta partinn en þá má gera ráð fyrir að það sjáist í brúnina á filmunni þar sem hún er. Kostar sirka 3-5x minna fyrir slíka aðgerð.

- - - - -

Ef einungis fremsti partur á grjótbarningssvæði frambretta:

Mazda CX30 24' - 26,5þ

BMW X3 22' - 31þ

Tesla MY 24' - 40,5þ

LC250 25' - 61þ

LC250 25' - 65þ

Grand Cherokee 22" - 30,5þ

Silverado 25' - 54,5þ

Tesla MY Juniper 25' - 29,5þ

Brettakantar 25.000–37.000 krYfirleitt er fremri hluti brettakantanna varinn með PPF, en einnig er hægt að filma þá alla leið.
⭐ Brettakantar - [Vinsælt]

Brettakantar eru undir miklu álagi!

Yfirleitt er fremri hluti brettakantanna varinn með PPF, en einnig er hægt að filma þá alla leið.

Pajero 35" breyttur 07' - 25þ (fremri partur á fremri brettaköntum)

MachE GT 24' - 27,5þ (fremri partur á aftari brettaköntum)

MachE 24' - 31þ (fremri partur á aftari brettaköntum)

BMW X5 - 37þ (fremri partur á aftari brettaköntum)

Framljós 26.000–44.500 krFramljós eru dýr. Eitt stórt grjót í framljós getur valdið sprungu. Toyota-framljós kostar um 200 þúsund krónur stykkið en Porsche-framljós um 400 þúsund krónur.
⭐ Framljós - [Vinsælt]

Framljós eru dýr, en það er ekki dýrt að verja þau!

Toyota-framljós kostar um 150þús stykkið ef það skemmist, á meðan Porsche-framljós kostar um 400þús. Er þá ekki augljóst að verja ljósin fyrir aðeins 15-25 þúsund krónur á stykkið? Reiknaðu nú dæmið! 🤷‍♂️

Tesla M3 24' - 19,5þ

Tesla M3 24' - 17,5þ

Tesla MY 24' - 32þ

Rav4 24' - 46,5þ

MachE - 43þ

Polestar 3 24' - 33,5þ

BMW X3 22' - 26,5þ

Sorento 24' - 62,5þ (T-laga og kúpt - flókin)

LR Discovery 5 22' - 35,5þ

LR Discovery 5, 18'- 35,5þ

LC250 - 37þ

BMW X3 22" - 26,5þ

RAV4 - 34þ

LC250 - 38,5þ

LC250 - 40þ

XC90 - 32þ

Tesla MY 25' - 32,5þ

Grand Cherokee 22" - 23,5þ

Silverado 25' - 82,5þ (flókin, skipt upp í 2 parta)

BMW i4 m50 - 44þ

Toppur – fremsti hluti 27.000–35.000 krAlgengt er 25–50 cm breitt svæði við framrúðu.
⭐ Toppur (fremst) - [Vinsælt]

Enga ryðbletti fyrir ofan framrúðu takk!

Þetta er eitt algengasta svæðið til að PPF-verja. Hefurðu ekki oft séð bíla með ryð fyrir ofan framrúðu? Settur er 30-50cm breiður borði fremst á þakið (oftast að topplúgu) til að verja gegn grjótbarningi. Margir bílaframleiðendur galvanisera ekki þakið, sem þýðir að grjótkast veldur áberandi ryði samstundis.

Sportage 18' - 32,5þ (25cm borði)

Sorento 24' - 32,5þ (30cm borði)

Sorento 24' - 45þ (40cm borði/vafið)

LR Defender 24' - 36,5þ (50cm borði)

Land Cruiser 150 22' - 27,5þ (30cm borði)

Land Cruiser 150 16' - 33,5þ (35cm borði/vafið

Speglar 30.000–60.000 krVerð fer eftir lögun og frágangi.
Speglar

Hliðarspeglar verða fyrir bæði grjótkasti og nuddi, líkt og allur framendi bílsins. Flókið svæði að filma, en reynslumiklir filmarar ráða vel við það.

Hliðarspeglar verða fyrir bæði grjótkasti, líkt og allur framendi bílsins .. eða lenda í nuddi þegar eitthvað strýkur framhjá bílnum. Þeir geta verið eitt flóknasta svæðið að PPF-verja, en vanir menn eins og við getum það með smá þolinmæði.

Mazda CX30 24' - 51,5þ

Sportage 18' - 51þ

Rav4 24' - 51þ

XC90 - 49,5þ

Framrúðupóstur (A-pillars) 27.500–33.000 krA-pósturinn fær á sig grjót eins og aðrir hlutar framendans.
Framrúðupóstur (e. A-Pillars)

Eitt líklegasta svæðið sem grjótin lenda á!

Hefurðu ekki oft séð bíla með ryð á póstunum við framrúðu? Margir bílaframleiðendur galvanisera ekki póstana, sem þýðir að grjótkast veldur áberandi ryði samstundis!

Jeep Renigate 22' - 60þ

Tesla M3 24' - 28þ

Tesla MY 24' - 32,5þ

LR Defender 24' - 30,5þ

BMW X3 22' - 27,5þ

Land Cruiser 250 25' - 31þ

BMW X3 22" - 27,5þ

RAV4 - 26þ

Land Cruiser 250 - 33þ

Gluggapóstur (B-pillars) 28.000–55.500 krFingrarispuvörn á B-pósta.
Gluggapóstur (e. B-Pillars)

Fyrirbyggjum fingrarispur!

Gluggapóstarnir eru oft eitt mest rispaða og áberandi svæði bílsins. Fingrarispur og þvottarispur geta gert þá fljótt ljóta, en með PPF-vörn hverfa þessar áhyggjur með öllu!

Optima 21' - 106,5þ (4stykki / vafið)

Superb - 29,5þ (6stykki / ekki vafið)

LR Defender 24' - 38,5þ (4stykki / vafið að framan)

Peugeot 3008e 24' - 38,5þ (6stykki / ekki vafið)

LR Discovery 5 - 38,5þ (4stykki/vafið að framan)

BMW i4 m50 - 23,5þ (2stykki/vafið)

Neðri partur hurða (aftari) 25.000–35.000 krRocker-panel svæði aftari hurðarinnar. Framdekk kasta grjóti þangað upp. Einnig er hægt að filma báðar hurðir ef þörf er á.
⭐ Neðri partur hurða (e. Rocker panel) - [Vinsælt]

Mesti grjótbarningurinn lendir á neðri hluta hurðanna og því er mikil ástæða til að verja þær!

"Rocker panel" á ensku er svæðið neðsta á hurðum og sílsum.

Við filmum fyrir neðan bodylínuna á hurðunum (alla leið) til að hafa sem flottastan frágang. Framhjólin kasta upp grjóti af veginum sem hamrar neðri hluta hurðanna og sílsanna. Þetta svæði er algengast að verja, þar sem það verður fljótt "hamrað" og skemmist ef það er óvarið. Oftast lendir grjót bara á aftari hlutanum, en stundum að framan líka en þá þarf að taka þetta alla leið.

Sportage 18' - 70þ (allar 4 hurðar/vafið)

Rav4 24' - 29,5þ (allar 4 hurðar/vafið)

Tesla M3 24' - 31þ (aftari hurðar/vafið)

Tesla MY 24' - 41þ (aftari hurðar/vafið)

MachE GT 24' - 31þ (aftari hurðar/ekki vafið)

Polestar 3 24' - 12,5þ (aftari hurðar/ekki vafið)

Tesla MY - 65,5þ (fram- og aftari hurðar/vafið)

BMW X5 - 71þ (fram- og aftari hurðar/vafið)

Sílsar (aftari partur) 30.000–50.000 krAftara rocker-panel svæðið. Framdekk kasta grjóti þangað upp. Einnig er hægt að filma sílsann alla leið ef þörf er á.
⭐ Sílsar (e. Rocker panel) - [Vinsælt]

Mesti grjótbarningurinn lendir á sílsunum og því er mikil ástæða til að verja þá!

"Rocker panel" á ensku er svæðið neðsta á hurðum og sílsum.

Við filmum sílsann fyrir neðan aftari hurð (alla leið að framhurð) til að hafa sem flottastan frágang. Framhjólin kasta upp grjóti af veginum sem hamrar neðri hluta afturhurðanna og sílsanna. Þetta svæði er algengast að verja, þar sem það verður fljótt "hamrað" og skemmist ef það er óvarið.

BMW X5 22' - 52þ (sílsi alla leið / vafið / beint)

BMW iX 24' - 28,5þ (aftari sísli / vafið / beint)

Tesla M3 24' - 56þ (aftari sílsi / vafið/ L-laga whole piece)

Tesla M3 24' - 23,5þ (Upprunalega PPF fjarlægt og settur nýr í sömu stærð nema með vafningi í falsið)

Undir hurðahúna Um 15.000 krFinnst þér naglarispurnar undir hurðarhúnunum pirrandi? PPF fyrirbyggir þær.
Undir hurðahúna

Burt með rispur undir hurðahúnum!

Hefurðu skoðað rispurnar undir hurðahúnunum á bílnum þínum? Eru þær ekki pirrandi? Með PPF-vörn sem rispuvörn í skálarnar undir hurðahúnunum er hægt að leysa þennan vanda alveg.

Verð: Oftast um ~4þ undir hvern hurðahún, svo að meðaltali ~15þ allar fjórar hurðarnar

Farangursvörn / skottvörn 19.000–32.000 krFarangur sem fer inn og út úr skottinu getur rekist í og rispað stuðarann. PPF fyrirbyggir það.
⭐ Farangursvörn / Skottvörn - [Vinsælt]

Eitt allra vinsælasta svæðið að filma!

Filman er sett á afturstuðarann við skottinnganginn og ver hann fyrir farangri (búðarpokar, gólfsettið, hundurinn, jólatréð .. ). Skorið er í kringum skynjara ef þeir eru til staðar.

Polestar 3 24' - 16,5þ

Tesla M3 24' - 18,5þ

Sorento 16' - 21þ

Sorento 24' - 19þ

Sorento 14' - 22,5þ

Rav4 24' - 38þ (2 skynjarar)

BMW 3 24' - 21þ (2 skynjarar)

Volvo XC60 24' - 56þ (þrískipt og 2 skynjarar)

BMW i4 m50 - 21þ

Hurðaföls / skóvörn 28.000–49.750 krVerð fer eftir fjölda stalla og hvort plöst eru fjarlægð.
Hurðaföls (skóvörn)

Engar rispur og ryð í fölsin takk!


Skórnir þínir rekast oft í falsið þegar þú sest inn, áberandi rispur koma strax fyrstu mánuðina, en með tímanum þynnist lakkið og á endanum er þetta komið í gegn og fer að ryðga. PPF-filman kemur í veg fyrir þetta og verndar yfirborðið fullkomlega!

Superb 18' - 26þ

Sorento 24' - 36,5þ (frammí einungis, plöst fjarlægð og filma sett undir)

MachE GT 24' - 44,5þ

MachE 24' - 21þ (frammí einungis)

Polestar 3 24' - 43þ

Land Cruiser 150 22' - 48þ (3x stallar)

Land Cruiser 150 16' - 84þ (3x stallar)

Land Cruiser 250 25' - 32þ (1x stallur)

LR Discovery 5 22' - 45,5þ

Peugeot 3008e 24' - 50,5þ

Bensín- og rafmagnslok 8.500–12.500 krPPF ver lokið gegn fingrarispum.
Bensín- og rafmagnslok

Fljótlegt og ódýrt!

Fingrarispur myndast á öllum bensín- og rafmagnslokum þegar þrýst er á, til að opna .. en með Immortal PPF er það úr sögunni!

RAV4 24' - 8,5þ (ferkantað / ekki vafið)

MachE GT - 16þ (fimmhyrnt / vafið)

Polestar 3 24' - 10,5þ (ferkantað / vafið)

LR Discovery 5 22' - 8,5þ (ferkantað / vafið)

Land Cruiser 250 25' - 13,5þ (ferkantað / vafið)

Framrúða – Immortal Glass 79.000–105.000 krGlær PPF-vörn fyrir alla framrúðuna — engin hætta frá grjótkasti lengur.
Framrúða [Immortal Glass]

Það er dýrt að skipta um framrúðu!

Framrúðan er berskjölduð fyrir grjóti og dýrt að láta skipta henni út. Láttu filmuna taka á sig grjótbarninginn!

ATH: Þessi þjónusta er eingöngu ætluð fyrir ökutæki sem ekki eru í daglegri umferð, svo sem sýningar-, safn- eða keppnisbíla. Notkun filmunnar á framrúðu ökutækis sem fer í almennri umferð er á fullri ábyrgð viðskiptavinar. 👉 Sjá skilmála.

85.000kr - KIA XCeed 21'
93.500kr - XC90 24'
83.500kr - LC 250 25'
100.000kr - Santafe 25'
80.000kr - Land Cruiser 250
97.500kr - Renault Traffic 25'
100.500kr - Renault Traffic 25'
85.000kr - BMW X3 25'
81.000kr - Santafe 25'
102.500kr - Silverado 25'

Önnur sérþjónusta

Við erum snillingar í svo mörgu! Hvað má bjóða þér?
[Öll verð eru með vsk]

Verðskrá Fólksbíll Lítill Jeppi Stór Jeppi Yfirstærð
Ryðviðgerð og blettun Nánar Verðmetið kr Verðmetið kr Verðmetið kr Verðmetið kr

Ryðviðgerðir og blettun á bílum

Viðgerðin felur í sér að pússa niður ryð, hreinsa og grunna flötinn og bera á málningu. Fyrir nákvæmara verð fer bíllinn í stutta ástandsskoðun hjá Steinabóni.

Mörk þjónustunnar

Þumalputtaregla: Einstakur ryðblettur má ekki vera stærri en litla nöglin. Myndirnar sýna muninn á því sem fellur innan þjónustunnar og ryðskemmdum sem eru of umfangsmiklar.

Utan marka
Útbreiddar ryðskemmdir sem falla utan marka þjónustunnar

Útbreitt ryð eða margir stórir blettir krefjast umfangsmeiri viðgerðar.

Innan marka
Litlir stakir ryðblettir sem falla innan marka þjónustunnar

Stakir, litlir ryðblettir sem eru ekki stærri en litla nöglin.

Verkferlið

  • Ryðið pússað niður.
  • Sárið hreinsað og grunnað.
  • Málningarlitur blandaður með herði í réttum hlutföllum og borinn í sárið.
  • Málningin látin herða.

Mat og verð

  • Fimm mínútna ástandsskoðun er nauðsynleg fyrir nákvæmara verðmat.
  • Algengt verð er 15.000–45.000 kr.
  • Eigandi útvegar réttan lit fyrir bílinn. Algengir litir eru til hjá okkur: svartur, grár, hvítur og rauður.

Bóka tíma

Smáréttingar (dældir) Nánar Verðmetið kr Verðmetið kr Verðmetið kr Verðmetið kr

Smáréttingar á dældum í bílum

Steinabón er með búnað til að gera við dældir. Árangurinn ræðst af gerð og staðsetningu dældarinnar og því er ekki hægt að tryggja að hver viðgerð takist.

Mat á viðgerð og verð

  • Oft er hægt að ná dældinni út en ekki alltaf.
  • Startgjald er 5.000 kr. fyrir uppsetningu búnaðar og fyrstu tilraun.
  • Algengt verð þegar viðgerð tekst er 5.000–20.000 kr.
  • Stærri eða flóknari verkefni geta kostað meira.

Gott að vita

Erfiðari dældir: Við höfum góðan búnað og náum oft mjög góðum árangri. Sum verkefni kalla þó á sérhæfðari verkfæri og umfangsmeiri vinnu. Þá gætum við þurft að vísa verkinu til aðila sem sérhæfir sig eingöngu í dældaviðgerðum.

Bóka tíma

Lyktareyðing Nánar frá 7.500 kr frá 7.500 kr frá 7.500 kr frá 7.500 kr

Lyktareyðing – alvöru meðferð gegn þrálátri lykt

Lyktareyðing vinnur gegn óæskilegri lykt í innréttingu, sætum, teppum og loftræstikerfi bílsins.

Algengustu orsakir

  • Reykingarlykt.
  • Hundalykt.
  • Rotnandi matarleifar sem hafa fest í áklæðum.
  • Fúkkalykt eftir myglu.

Meðferð valin eftir þörfum

  • Þrif – verðmetið. Fyrsta skrefið er alltaf almenn þrif að innan ásamt djúphreinsun á sætum og teppum. Stundum nægir þetta eitt og sér til að eyða allri eða stærstum hluta ólyktarinnar.
  • Lyktarbomba – 7.500 kr. Næsta skref ef þrifin duga ekki. Lyktarbomban er látin dreifa lyktareyðandi efni um bílinn í um 30 mínútur á meðan miðstöðin er stillt á hringrás. Efnið dreifist um farþegarýmið og inn í loftræstikerfið.
  • Ozone Generator – 20.000 kr. Ef lyktin situr enn eftir beitum við öflugri ósonmeðferð. O₃ dreifist um farþegarýmið og oxar lyktarvaldandi efni og lífrænar leifar, einnig á svæðum sem ekki er hægt að ná til með hefðbundnum þrifum.
    • ATH.: Óson er ekki öruggt til innöndunar. Meðferðin fer því eingöngu fram í mannlausum bíl við stýrðar aðstæður. Að henni lokinni er bíllinn loftaður vandlega í að minnsta kosti 10 mínútur og þar til óson hefur horfið.

Gott að vita

Árangur: Þetta eru mjög árangursríkar leiðir, en ekki er alltaf hægt að tryggja fullkomna lyktareyðingu. Oft eru viðskiptavinir ánægðir þegar 70–90% af lyktinni hverfur – og í mörgum tilfellum tekst okkur að eyða henni að fullu.

Bóka tíma

Mygluhreinsun Nánar Verðmetið kr Verðmetið kr Verðmetið kr Verðmetið kr

Mygluhreinsun í bílum

Steinabón býður mygluhreinsun sem sérþjónustu. Umfang verkefnisins ræður verði meðferðarinnar.

Meðferð og verð

  • Sérhæfð hreinsiefni eru notuð við meðferðina.
  • Enzym Odour-Eater er meðal þeirra efna sem notuð eru.
  • Algengt verð er 5.000–20.000 kr., eftir stærð og umfangi verkefnisins.

Bóka tíma

Myndartökur Nánar 10.000 kr 10.000 kr 10.000 kr 10.000 kr

Myndataka af bíl fyrir sölu

Steinabón tekur vandaðar myndir af bílnum að innan og utan fyrir söluauglýsingu. Bílnum er stillt upp sérstaklega fyrir tökuna og myndirnar fá myndvinnslu sem eykur dýpt og gljáa lakksins.

Vandaðar myndir gera meira fyrir bílinn en hraðteknar myndir á bílasölu. Ef þú vilt að bíllinn líti sem best út í auglýsingunni, láttu okkur sjá um myndatökuna.

Innifalið í myndatöku

  • Vandaðar myndir að innan og utan.
  • Góð sjónarhorn sem sýna bílinn vel.
  • Myndvinnsla fyrir aukna dýpt og glans.
  • 8–10 tilbúnar myndir fyrir söluauglýsinguna.

Bóka tíma

Bílastæði - FRÍTT Nánar 0 kr 0 kr 0 kr 0 kr

Frítt bílastæði með bón- eða detailingþjónustu

Ertu á leið til útlanda? Hjá Steinabóni er frítt að leggja bílnum þegar pöntuð er bón- eða detailingþjónusta fyrir hann.

Staðsetning, akstur og skilmálar

  • Steinabón er aðeins fjórum mínútum frá Keflavíkurflugvelli.
  • Fast dag- og næturgjald hjá Aðalstöðinni/Airport Taxi: 3.500 kr. fyrir lítinn bíl og 4.500 kr. fyrir stærri bíl, frá eða til flugvallar.
  • Langtímastæði fyrir allt að tíu bíla er innifalið þegar bón- eða detailingþjónusta er pöntuð.
  • Myndavél tekur upp bílastæðin að aftanverðu.
  • Bíllinn geymist á ábyrgð eiganda.
Gott að vita

Verð leigubíla getur breyst: Verðin miðast við samkomulag frá febrúar 2026. Láttu okkur vita ef þau hafa breyst.

Akstur frá flugstöð: Hliðgjald, 500 kr., bætist við ef farþegi er tilbúinn við komu. Ef bílstjóri þarf að bíða og sækja inn í flugstöð bætast 3.000 kr. við.

Bóka tíma

Bókaðu núna!