Innanþrif hjá Steinabóni í Keflavík eru fyrir þig sem vilt láta hreinsa bílinn vandlega að innan, allt frá rúðum og innréttingu að mottum og þröngum svæðum.
Hvað er innifalið í innanþrifum?
- Rúður hreinsaðar.
- Ryk og óhreinindi losuð úr þröngum svæðum með loftpressublæstri.
- Bíllinn ryksugaður.
- Næring og gljáefni borin á innréttingu til að gefa henni fallega áferð.
- Gljáefni borið á mottur. Notað er vatnsbundið efni sem myndar ekki sleipt yfirborð.
Djúphreinsun er viðbót: Ef blettir eru í sætum eða teppum, eða langt er liðið frá síðustu djúphreinsun, má bæta henni við þjónustuna.
Bóka tíma í innanþrif eða skoða aðra þjónustu í verðskrá Steinabóns.