1.gr. Fagleg þjónusta
Steinabón Bónstöð er rótfestur atvinnurekstur sem hefur veitt viðskiptavinum faglega þjónustu í um 6 ár. Útseld þjónusta hjá Steinabón er veitt í atvinnuskyni og er ávallt byggð á fagþekkingu og í samræmi við góða viðskiptahætti sem tíðkast hverju sinni. Steinabón veitir viðskiptavinum sínum upplýsingar og leiðbeiningar um vinnu verks með hagsmuni neytanda að leiðarljósi. Hjá Steinabón geta viðskiptavinir treyst á vönduð vinnubrögð þar sem Steinabón hefur reynslu og áreiðanleika sér vopni til að ná framúrskrarandi árangri. Hér fyrir neðan eru nokkrar greinar sem ætti að uppljóstra viðskiptavini um þær áhættur sem gætu fylgt því að láta þjónusta bifreið og gera viðskiptavini kleift að ekki er alltaf hægt að taka alla ábyrgð á verkinu ef svo óheppilega vill til að í harðbakan slær. Lög nr. 42/2000 um þjónustukaup eiga við alla þjónustu sem Steinabón veitir gegn endurgjaldi.
2.gr. Óviðráðanleg atvik
Steinabón ber áhættu af tjóni, eða rýrnun, sem verður áður en starfsmenn þess skila af sér verki nema þeir sýni fram á að tjónið sé vegna atvika sem ekki eru á þeirra valdi, sbr. 19. gr. laga nr. 42/2000 um þjónustukaup.
3.gr. Vanræksla
Verði tjón á eignum viðskiptavina Steinabóns þegar verk er unnið eða í tengslum við það eða hlutur sem afhentur hefur verið Steinabóni glatast eða skemmist ber Steinabóni að bæta það tjón nema starfsmenn þess sanni að þeir hafi ekki sýnt af sér vanrækslu, sbr. 25. gr. laga nr. 42/2000 um þjónustukaup.
4.gr. Afhending eigna
Hafi hlutur sem vinna á við verið afhentur Steinabóni ber Steinabón áhættu af því ef hlutnum er stolið eða hann skemmist af öðrum óviðráðanlegum orsökum. Þetta gildir þó ekki ef hlutur hefur ekki verið afhentur viðskiptavini á réttum tíma vegna ástæðna sem varða hann, sbr. 26. gr. laga nr. 42/2000 um þjónustukaup. Þegar vinnu Steinabóns er að fullu lokið en verki hefur ekki verið skilað á réttum tíma vegna aðstæðna sem varða viðskiptavin flyst áhættan til hans. Afhending viðskiptavina bifreiðar til Steinabóns telst þegar lyklar eru afhentir Steinabóni í persónu. Frá þeim tímapunkti ber Steinabón ábyrgð á tjóni eða rýrnum bifreiðar, nema starfsmenn Steinabóns sýni fram á að tjónið sé vegna atvika sem ekki eru á þeirra valdi.
5.gr. Geymsla eigna, tjón, bruni og þjófnaður
Þegar verki lýkur býður Steinabón viðskiptavinum sínum fram geymslusvæði fyrir eignir viðskiptavina. Um er að ræða bílaplan og/eða annað geymslusvæði. Steinabón ber ekki ábyrgð á hverskyns þjófnaði eigna viðskiptavina Steinabóns af geymslusvæði eða af grasfletinum þegar eignir viðskiptavina eru geymdar þar að verki loknu. Hér á einnig við þjófnað á íhlutum eða öðrum eignum innan bifreiða. Steinabón tekur ekki ábyrgð á bruna eigna viðskiptavina Steinabóns né tjóns af einhverju tagi við geymslu eigna viðskiptavina að verki loknu. Ef að starfsmenn Steinabóns setja lykla bifreiðar og aðra fylgihluti lyklakippu ofan á dekk eða inn í felgu eða í MasterLock lyklalás þá ber Steinabón ekki ábyrgð á þjófnaði, frost – eða vatnstjóni á lyklunum. Steinabón hefur brunatryggingu sem tryggir eignina upp að ca. 7,5m, ef brunatjón fellur undir brunatryggingu Steinabóns er viðskiptavini skylt að greiða umfram það.
6.gr. Verðmæti
Sé hlutur sem vinna á við mun meira virði en Steinabón má gera ráð fyrir ber neytanda að gera Steinabón grein fyrir því. Sama gildir ef við geymslu eða meðferð hlutarins ber að sýna sérstaka varkárni. Hafi viðskiptavinur vanrækt upplýsingaskyldu sína er heimilt að takmarka eða fella niður bótaskyldu Steinabóns, sbr. 27. gr. laga nr. 42/2000 um þjónustukaup vegna tjóns á bifreiðum viðskiptavina.
- gr. Lakk og lakkfilmur (PPF) almennt
Til að Steinabón geti sinnt þjónustunni á eðlilegan máta skal viðskiptavinur tryggja það að lakk og filmur í núverandi ástandi höndli háþrýstiþvott þjónustunnar, því það geta verið margskonar skemmdir/gallar eða rýrnun í lakki/filmum sem gerir það að verkum að lakk/filmur höndli ekki vatnsþrýsting háþrýstidælu (þ.e.a.s grunnur, litur eða glæra bifreiða flettist upp, eða filman flettist upp). Ef dýpri rispur finnast á lakki og viðskiptavinur telur það vegna vanrækslu Steinabóns við þjónustu verður hann að sannreyna það því m.v góðan búnað og mikla varkærni Steinabóns við verk sín er mjög ólíklegt að dýpri rispur myndist við þjónustuna sjálfa. Þó svo að Steinabón noti mögulega allra öruggustu þvottaaðferðir er ekki hægt að ábyrgjast 100% þvottarispulaus þrif.
- gr. Mössun
Ef þjónusta skal lakkviðgerð (e. mössun með meiru) fyrir hönd viðskiptavinar skal hafa í huga að sumar rispur eru dýpri en aðrar, og þarf því að slípa þær/þau svæði sérstaklega djúpt niður. Við mössun þynnist lakkið og gæti jafnvel orðið hætta á að glæra lakkhúðarinnar slípist alveg niður ef rispur eru mjög djúpar. Viðskiptavinur ber skylt að vara Steinabón við ef um eitthvað sérstakt/óvenjulegt sé til þess að varast (dæmi: ef lakk hefur verið massað áður, ef lakk sé orðið þunnt einhverra hluta vegna, ef sprungur eða glæruflagn sé á lakki og fl). Þegar viðskiptavinur lætur verkið í hönd Steinabóns tekur hann alla ábyrgð á þynningu lakksins við meðferð þess. Þó þynning kæmi til með að myndast er lakkið ekki ónýtt og hættir ekki að verja málminnn en ef slíkt gerist býður Steinabón upp á ódýra lausn þar sem málningu er komið aftur á flötinn með airbrush spautikönnu og jafnað út.
- gr. Lakkvarnir og nýmálað lakk
Margir áhrifaþættir snerta endingargetu ceramic- eða bónhúðar sem borin er á bíl viðskiptavinar. Steinabón notar alla sína sérþekkingu til að undurbúa lakkið á réttan máta fyrir húðun (bón- eða ceramic húðun). Skipta má áhrifaþáttum í tvo flokka sem hafa áhrif á endingu, í fyrsta lagi flokk sem er vegna vanrækslu viðskiptavinar við viðhald húðarinnar og flokk vegna óviðráðanlega áhrifaþátta sem er að völdum veðurfars og/eða akstursskilyrðum hérlendis. Framleiðandi vörunnar sem notuð er á bifreiðina vonast til að varan dugi eins og þeir gefa upp, en geta ekki tryggt endinguna þar sem ofangreind atriði geta haft mikil áhrif. Sama á gildir um Steinabón.
Viðskiptavinur verður að tilkynna Steinabón ef bíll/partur af bíl er nýmálaður því ekki má bera bón- eða ceramic húðun á nýmálað lakk innan ca. 30 daga því glæra lakks hefur ekki náð fullum þurrk. Húðunin lokar óþornað lakkið inni og bólumyndun getur átt sér stað. Svo ekki getur Steinabón tekið á sig vanrækslu ef viðskiptavinur gleymir að tilkynna.
- gr. Sparsl fylliefni og IR lampa bakstur við keramic ásetningu
Hafi bíll viðskiptavinar fengið lent í tjóni og þurft að láta mála flöt upp á nýtt á málningarverkstæði er ekki óalgengt að sparl sé notað til að slétta úr yfirborðinu í slíkri þjónustu. Þá skal viðskiptavinur tilkynna Steinabóni ef um sparsl sé að ræða á einhverjum fleti bílsins áður en hann fer í gegnum keramik þjónustu Steinabóns því ekki er hægt að greina með auga ef um sparl undir lakki sé að ræða. Þetta er mikilvægt því við þjónustu Steinabóns við ásetningu keramik varna eru notaðir sérstakir IR lampar (InfraRed) til að hita upp lakkið. Við hitun lakksins (60-70°C) getur sparsl eftir fyrri málningarrvinnu losnað úr fari sínu, lekið til og valdið tjóni.
- gr. Djúphreinsun og leðurhreinsun
Eðlilega má búast má við að Steinabón getur ekki ábyrgst að tauefni sætis – og teppis slitni við meðferð hreinsunar. Sama á við önnur einangrunarefni, svo sem staðsett eru í skotti bifreiðar. Steinabón getur ekki ábyrgst myglumyndun í tauefnum og/eða í svampi ef búið er að tilkynna viðskiptavini um hvernig skal meðhöndla áframhaldandi þurrkunarferli þess. Hér er átt við framkvæmd þurrkunar sem tekur við að djúphreinsun lokinni. Steinabón tekur ekki ábyrgð á tjóni á rafbúnaði eða öðru rafbúnaðartengdum búnaði við djúphreinsun. Hér má nefna ef vökvi kemst í snertingu við rafbúnað, víra, takka eða annan rafbúnað bifreiðarinnar. Varðandi leðurhreinsun þá er ekki hægt ábyrgjast slit á leðri, upplitun, að áferð verði mött eða saumar leðurs losna upp við þrif þess. Hér á einnig við önnur leðurlíki.
- gr. Festing sæta, stýris og barnabílstóla, drifskaftsstilling og aðrar stillingar
Hlutir sem þurfa festu eins og bílsæti, barnastólar, stýrisbúnaður eða drifskaftstöng getur Steinabón ekki ábyrgst að sé réttilega fest aftur eða fest yfir höfuð (sett aftur í sinn lás/sína stöðu). Við þjónustu bifreiðar þarf stundum að losa ofangreinda hluti úr festu sinni og það gæti verið úr stöðu sinni þegar bíll er afhentur. Til að koma í veg fyrir slys, skal viðskiptavinur Steinabóns athuga við afhendingu bíls hvort ofangreind atriði séu ekki örugglega verið nógu vel föst. Einnig skal viðskiptavinur athuga hvort drifbúnaður bíls sé rétt stilltur fyrir komandi akstur. Sama gildir um aðra takka og stillibúnað í bílnum því þeir gætu verið vanstilltir.
13 gr. Aftursýnisspeglar
Steinabón tekur ekki ábyrgð á skemmd aftursýnisspegla í framrúðu sem eru eldri en 4 ára ef plastfesting brotnar. Plast verður brothættara með tímanum og verður því speglafestingin (ef úr plasti) viðkvæmari fyrir hreyfingum eða því hnjaski sem hún gæti orðið fyrir. Plastfesting gæti því brotnað við minnsta álag.
- gr. Gljáefni motta bifreiðar
Þrátt fyrir fagkunnáttu og notkun sérefna á mottur þá gætu mottur vegna glansefna verið örlítið sleipar. Viðskiptavinur skal gera sér grein fyrir því að þessi þjónustu er innifalin í öllum þjónustuliðum Steinabóns sem tengjast innanþrifum og þarf viðskiptavinur sérstaklega að tilkynna ef hann vill sleppa því að fá gljáefni á mottur, svo Steinabón getur ekki ábyrgst slysahættu sem gætu fylgt gljáefnum á mottum.
- gr. Festingar og límingar á ytra byrði bíls
Steinabón tekur ekki ábyrgð á að festingar, lím, límmiðar eða önnur festiefni tengt bifreið gefi sig við notkun háþrýstidælu, háþrýstilofts eða vegna efnanotkunar. Hér á til dæmis við um auglýsingarmiða á lakki/rúðum bifreiða, skoðunarmiðar á bílplötum bifreiða og einnig límfestingar sem festa aukahluti (svo sem vindskeið (spoiler), svuntur (lip) og aðra aukahluti.
- gr. Ofnæmi
Ef gleymist að tilkynna Steinabón frá ofnæmiseinkennum sem gætu brotist upp hjá viðskiptavini bifreiðar getur Steinabón ekki tekið ábyrgð á að hann finni fyrir slíkum einkennum.
- gr. Akstur
Aðallega leggur Steinabón upp með að sinna þjónustu sem tengist bifreiðinni sjálfri innan aðstöðunnar heldur en þjónustu tengt skutli á bifreið en EF óskað er eftir skutlþjónustu fer kostnaður hennar eftir samkomulagi og athuga skal vel að bifreið þarf að standast kröfur skoðunarstöðva áður en sótt er (Aðalskoðun eða Frumherji t.d). En ath, ef ekki er rukkað fyrir skutlþjónustu þá liggur ábyrgð vegna tjóns bifreiðar ekki á Steinabón og fellur utan laga um þjónustukaup nr. 42.2000.
- gr. Auglýsingarvörur
Þó okkar besta auglýsing liggur í okkar rótfesta orðspori höfum við gaman að auglýsingarvörum sem við viljum gefa heppnum viðskiptavinum, í því getur falist t.d lyklakippa, penni, límmiði í rúðu, rúðuskafa og fl. Með að skrifa undir þessa skilmála samþykkir þú auglýsingarvörur frá Steinabón.
- gr. Greiðslur og verðskrá
Verðskrá Steinabóns tilgreinir sanngjant verð miðað við vinnu og eðli hennar. Steinabón lætur viðskiptavini í té verðáætlun vegna vinnu sinnar, ýmist samkvæmt almennri verðskrá Steinabóns eða sérkjörum fyrir þá viðskiptavini sem kaupa þjónustu Steinabóns reglulega. Verð má ekki fara verulega fram úr þeirri áætlun, sbr. 29. gr. laga nr. 42/2000 um þjónustukaup. Steinabón áskilur sér lítillega verðhækkun ef verk er meira virði en áætlað var. Í verðáætlun eru innifalin öll opinber gjöld.
Ef að Steinabón tekur að sér undirbúningsvinnu að beiðni viðskiptavinar í þeim tilgangi að skilgreina hve vinna væri mikil eða verð þjónustu sem vinna skal af hendi er Steinabón heimilt að krefjast sérgreiðslu fyrir hana, sbr. 33. gr. laga nr. 42/2000 um þjónustukaup.
Steinabón veitir viðskiptavinum sínum 30 daga gjaldfrest á kröfum sínum vegna vinnu sinnar. Að loknum þeim fresti reiknast dráttarvextir seðlabanka Íslands á kröfur viðskiptavina.
- gr. Viðbótarkostnaður verks
Steinabón áskilur sér rétt til hækkunar á umsömdu verði ef verk ef meira virði en búast mátti við, sbr, 30. gr. laga nr. 42/2000 um þjónustukaup. Ef verk Steinabóns er mun umfangsmeira en áætlað var og kostnaður verulega meiri en umsamið var, þá ber Steinabón að tilkynna viðskiptavini það með sannarlegum hætti og óska eftir fyrirmælum um áframhaldandi verk, sbr. 31. gr. laga nr. 42/2000 um þjónustukaup. Ef viðskiptavinur svarar ekki tilkynningu Steinabóns um hækkun kostnaðar er Steinabóni heimilt að hætta vinnu við verk viðskiptavinar Steinabóns. Ef Steinabón ákveður að hætta verki á hann kröfu á viðskiptavin sem nemur hlutfalli unninnar vinnu.
- gr. Almennt um sölu á vörum
Steinabón ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
- gr. Afhending á vörum
Allar vörur eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Steinabón ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Steinabón ehf. til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
- gr. Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við Steinabón ehf. með spurningar.
- gr. Verð á söluvörum
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.
- gr. Skattar og gjöld á söluvörum
Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.
- gr. Trúnaður við kaup á söluvörum
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
- gr.Póstlisti
Með að samþykkja þessa skilmála samþykkir þú að Steinabón megi senda þér netpósta, sms eða með öðrum markaðsverkfærum. Steinabón vill gefa viðskiptavinum bestu tilboðin, tilkynna breytingar eða koma öðrum skilaboðum hratt og örugglega til viðskiptavina.
- gr. Ágreiningur
Greini aðila að þjónustusamningi þessum á um réttindi sín og skyldur samkvæmt lögum nr. 42/2000 um þjónustukaup geta þeir, einn eða fleiri, snúið sér til kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa og óskað eftir álitsgerð nefndarinnar um ágreiningsefnið.
Niðurstöðum kærunefndar verður ekki skotið til annarra stjórnvalda en aðilar geta lagt ágreining sinn fyrir dómstóla með venjulegum hætti.
29.gr. Skrópgjald – Tímabreytingar og skrópun án fyrirvara
Viðskiptavinur ber ábyrgð á því að láta vita með 24 klukkutíma fyrirvara með höfnun eða breytingu á tíma ef þörf er. Steinabón er með mjög sveigjanlega þjónustu varðandi tímapantanir en Steinabón verður að geta réttlætt sér að rukka 50% af uppsettu verði ef ekki er látið vita með 24 klukkutíma fyrirvara um höfnun eða breytingu á tíma, vegna launakostnaðar aðallega, rekstrarkostnaðar og annars slíks.
30.gr. PPF grjótvarnarfilmuásetning
Steinabón sinnir grjótvarnarfilmuásetningu að kappi og vandvirkni. Fyrirtækið er með ein flottustu réttindi sem finnast í þessum filmubransa og því öll vinna reynt að gera eins fagmannlega og kostur er (eða eins og samið er um). Iðnaðarstaðallinn (e. Industrial standard) er að viðskiptavinur eigi ekki (eða lítið) að sjá í filmuenda, rykkorn eða mögulegar línur í filmunni (e. delamination) í ca. 2 metra fjarlægð frá bílnum. Oftast tekst okkur að gera verkið það vel að ekki sést í 0.5-1m fjarlægð, en það fer eftir hversu erfiður flöturinn er varðandi ásetningu filmunnar.
Steinabón tekur ekki ábyrgð á neðangreindu:
- Filmuendar: Hér er átt við ef filma er skorin 1-2mm frá brún flatarins sem unnið er með, eða ef PPF filmubútur er settur á svæði sem þekur ekki allt svæðið, þá mun sjást óhjákvæmilega í filmuenda. Þessu verður að búast við.
- Rykkorn/sandkorn: Ryk svífur um í loftinu og þó nýbúið er að þrífa flötinn áður en filma er sett á, þá getur ryk komist á milli og fests undir, sem er aðallega sjáanlegt ef dökklitaður bíll, en þetta sést afar illa. Sama gildir minniháttar sandkorn sem leynist milli lista/samskeyta og nær að smeygja sér undir filmuna í miðri ásetningu.
- Línur í filmu: Dæmi um það er þegar límið undir filmunni afmyndast / þornar / nær taki áður en skafið er. Oftast jafnast það út en stundum geta línur sitið eftir. Þetta sést mjög lítið og 98% (gróft gisk) af öllum okkar viðskiptavinum munu aldrei taka eftir límlínu í filmunni á sínum bíl ef þeir vita ekki nákvæmlega hvar hún er. Oftast eru límlínur óhjákvæmilegar en aðallega hægt að taka eftir á dökkum bílum frekar en ljósum.
31 .gr. Undirritun þessa skilmála
Með að kvitta undir eftirfarandi skilmála hér samþykkir þú ofangreindar greinar. Ef samningur/samstarf liggur milli Steinarbóns og fyrirtækis gilda þessir skilmálarnir fyrir allar bifreiðar í komandi viðskiptum. Ef um venjulegan viðskiptin Steinabóns er að ræða gilda þessir skilmálar fyrir öll komandi viðskipti þeirrar ákveðnu bifreiðar sem um er að ræða.
Síðast uppfært: 29/07/24’