Fara beint í aðalefni

Mössun og keramikhúðun í Keflavík

▰ STEINABÓNDETAILING · BÓNSTÖÐ · KEFLAVÍK

Lakkleiðrétting · CARPRO lakkvörn

Gljáinn kemur
úr undirvinnunni.

Þvottarispur, oxun, mattleiki? Við metum lakkið, veljum rétta mössun og byggjum vörnina á vandlegum undirbúningi.

Lakkástand, stærð bíls og umfang ráða endanlegu verði. Svart og mjög dökkt lakk er verðmetið sérstaklega.

Steini við lakkleiðréttingu
Verkefnamynd frá Steinabóni
L1–L4 lakkleiðréttingC.QUARTZ lakkvarnirRáðgjöf um viðhald

Þrjú skref

Undirbúningur. Leiðrétting. Vörn.

01

Hreinsun

Lakkið er dauðhreinsað og yfirfarið.

02

Mössun

Við mössum upp lakkið þitt og setjum það í eins fullkomið ástand og hægt er (miðað við óskir þínar og pakkavalið þitt).

03

Keramikhúðun

CARPRO keramikhúð er borin á lakkið og látin herða við stýrðar aðstæður yfir nóttu. Daginn eftir er þetta orðinn „glerungur“ yfir lakkinu þínu.

Viðmið úr verðskrá

Mössun og coat

MeðferðFólksbíllLítill jeppiStór jeppiYfirstærð
L1 · Nýr bíll70.000 kr.75.000 kr.80.000 kr.frá 95.000 kr.
L2 · Hefðbundin95.000 kr.110.000 kr.120.000 kr.frá 140.000 kr.
L3 · Dýpri130.000 kr.150.000 kr.160.000 kr.frá 170.000 kr.
L4 · Sýningaráferðfrá 160.000 kr.frá 180.000 kr.frá 190.000 kr.frá 210.000 kr.
DQ.PRO Diamond Quartz25.000 kr.25.000 kr.30.000 kr.35.000 kr.
C.QUARTZ Professional40.000 kr.50.000 kr.50.000 kr.60.000 kr.
C.QUARTZ Finest Reserve60.000 kr.70.000 kr.70.000 kr.80.000 kr.

Öll verð með VSK. Mössun, utanþrif og húðun eru aðskildir verðliðir. Mössunarverð bætist við „Þrif að utan + bón“. Húðun bætist við undirbúning og mössun. L1 miðast við alveg nýjan, ósnertan bíl sem hefur ekki verið þveginn. L4 er verðmetið í lok verks og uppgefin L4-verð eru frá-verð. Yfirstærð og svart eða mjög dökkt lakk: fáðu sértilboð. Sjá alla verðskrána.

Gott að vita

Spurningar og svör

Fara allar rispur?

Oftast náum við næstum því öllum rispum úr! En pakkaval, dýpt rispa, ástand og þykkt lakksins setja vinnunni mörk. En engar áhyggjur, við munum ná lakkinu vel upp fyrir þig!

Hvaða mössunarstig á ég að velja?

Þú þarft ekki að ákveða það fyrirfram. Sendu upplýsingar um bílinn og það sem þú vilt bæta. Við mælum með réttum pakka fyrir þig miðað við ástand bifreiðar og væntingar þínar.

Kemur keramikhúðun í stað grjótvarnarfilmu?

Nei. Keramikhúðun er lakkvörn með aðra eiginleika en PPF-grjótvarnarfilma. Ef markmiðið er vörn gegn steinkasti skaltu spyrja sérstaklega um PPF.

Þarf að þvo keramikvarinn bíl?

Já. Reglulegur, réttur þvottur og viðhald skipta máli. Við förum yfir umhirðu við afhendingu bílsins.

Leyfðu okkur að gefa þér tilboð!

Sendu okkur bíltegund, árgerð og óskir. Við leiðbeinum þér að kostnaðarlausu!

Fá frítt tilboð

Bókaðu núna!