Range Rover Sport 2015
Þjónusta:
- Alþrif + Full detail lakkviðgerð + Tvöföld C.Quartz UK Ceramic húðun
Ástand bifreiðar:
- Lakk var illa á sig komið eftir veturinn og kústþvotti. Bíll ekki alltaf verið þrifinn á réttan og öruggan máta, þvottarispur hafa safnast upp og gert bifreið hálf matta.
Ferli:
- Vandlega þrifinn að utan, felgur, plast, öll hurðaföls og annar vínill glansaður.
- Lakk lakkhreinsað með leir til að losa járnflísar (iron fillings) og oxun (oxidation).
- Allt þurrkað nánast snertilaust með loftblæstri + sérstökum drying towels.
- Djúpar rispur leitaðar uppi og fjarlægðar með P2000 og P3000 vatnspappírsmeðferð (sanding method).
- Allur bíllinn grófmassaður til að fjarlægja þvottarispur, dropaför, ‘sanding marks’ – [gljástig þá orðið 6/10]
- Allur bíllinn fínmassaður og grunnaður til að hækka gljástigið í það hæsta mögulega – [gjástig þá orðið 10/10]
- Bíllinn hreinsaður með IPA (Isopropyl alcohol) , lakk verður að vera 100% hreint fyrir ceramic húðun.
- Tvær umferðir af C.Quartz UK Ceramic Coating borið á lakkið, áætlaður endingartími er um 2 ár.
- Bíll geymdur innandyra í 35°C heitum blæstri (bakstur) í 10klst til að herða ceramic húðunina á bílinn.
- CarPro Reload top coating borið ofan á C.Quartz UK Ceramic húðunina.
- Bíllinn vandlega þrifinn að innan með detail burstum og mjóum stönglum til að þræða inn á milli erfiða svæða.